Hannaður fyrir líf í borg
Volvo V40 er nettur hlaðbakur sem er fullkomin fyrir borgarlíf. Hann er lipur í akstri, með notendavænt innra rými og hugvitssama tækni sem auðveldar þér lífið, V40 er fullkominn ferðafélagi.
Skapandi ferðalag
Fyrir Patrik, Önnu , Sabinu, Pontius og Sögu er Stokkhólmur meira en borg. Það er staðurinn þar sem einstaklingar blómstra. Fimm manneskjur með ástríðu fyrir sköpun og þau hafa öll sína sögu að segja.

Njóttu ferðarinnar
Kannaðu betur nýjan V40.

Saga Önnu
Anna er vöruhönnuður með áherslu á sjálfbærni, ást Önnu Glansén á vísindum og sköpun er rauði þráðurinn í þeirri umhverfisvænu stefnu sem hún vinnur eftir.

Saga Patriks
Patrik Guggenberger er fatahönnuður sem sækir innblástur í skandinavíska hönnun. Verk hans eru einstök og má segja að þau séu sannkölluð listaverk.

Saga Sabinu
Sabina Ddumba er upprennandi söngkona sem alin er upp í Stokkhólmi. Það var tónlist sem sameinaði fjölskyldu hennar og nú deilir hún lögum sínum með heiminum.
hafðu samband
Líst þér vel á þennan?
Hafðu samband við okkur og fáðu tilboð eða svör við spurningum sem leita á þig. Ef þú vilt setja bíl upp í þá er gagnlegt að senda okkur bílnúmer væntanlegs uppítökubíls. Við tökum allar gerðir bíla upp í. Mismuninn getur þú greitt eða við útvegum hagstæða fjármögnun. Skráðu þig líka á póstlista og fáðu fréttirnar fyrst/ur.
nýsköpun okkar
Fólk er leiðarljósið í öllu okkar starfi og því miðast nýsköpun okkar við að einfalda og bæta líf þitt. Við erum sérstaklega stolt af árangri okkar við þróun á vistmildari vélum, samskiptatækni og öryggi. Við eigum hugtök yfir hugsun okkar á þessum sviðum: Drive-E, Sensus og IntelliSafe.